Út er komin ný bók eftir Sigurð Ægisson,  Fugladagbókin, fuglar á Íslandi og árstíðirnar fjórar. Bókinni er lýst sem Listaverka dagbók, með fjölda glæsilegra ljósmynda af fuglum og margþættum fróðleik um 52 af þeim tegundum af rúmlega 400, sem talið er að hafi sést á Íslandi frá upphafi skráningar. Bókin er 223 síður. Bókaútgáfan Hólar gefur út bókina.

Í bókinni er að finna eyðublað fyrir hverja viku ársins, þar sem m.a. er hægt að skrá niður hvaða fuglategundir sjáist þennan eða hinn daginn, hvernig viðrar og svo framvegis. Auðvitað má svo einnig nota bókina eins og hefðbundna dagbók þar sem fólk skráir eitt og annað hjá sér.

Bókina er hægt að panta í Forlaginu á kr. 6290, eða hjá Pennanum, en þar er hún komin á tímabundið tilboð, 5999 kr.