Eins og undanfarin ár rekur UMFÍ frjálsíþróttaskóla á nokkrum stöðum á landinu í sumar í samstarfi við FRÍ. Skólinn, sem ætlaður er ungmennum á aldrinum 11 – 18 ára, verður starfræktur á Sauðárkróki, Laugum í Reykjadal, Egilsstöðum, Borgarnesi og Selfossi, á mismunandi tímum í sumar.
Á Sauðárkróki verður skólinn 22. – 26. júlí undir stjórn Árna Geirs Sigurbjörnssonar. Skráning hér.