Frítt á skíði fyrir yngri en 18 ára á sunnudaginn á Siglufirði
Alþjóða skíðasambandið FIS stendur fyrir sérstökum degi “World Snow Day” sunnudaginn 20. janúar. Þar eru aðildarþjóðirnar hvattar til að hvetja börn til skíðaiðkunnar.
Í tilefni dagsins er frítt fyrir þá sem eru yngri en 18 ára á Skíðasvæðið í Skarðsdal og 20% aflsátt í skíðaleigu.