Frístundastrætó á vegum Akureyrarbæjar verður settur í gang í haust. Þá verður boðið upp á akstur fyrir börn í 1.-4. bekk til og frá íþróttaæfingum og öðru tómstundastarfi kl. 13-16 á daginn.

Frístundaaksturinn er liður í að innleiða stefnu bæjarins um samfellu í skóla- og frístundastarfi sem unnið hefur verið markvisst að undanfarin tvö ár. Markmiðið er að skólastarf, íþróttir og aðrar tómstundir myndi eina heild hjá börnum í 1.-4. bekk. Í samvinnu við íþróttafélögin og þá aðila sem bjóða upp á tómstundir fyrir börn á þessum aldri hefur verið unnið að því að færa æfingatíma þeirra fyrr á daginn þ.e. frá kl 14-16 og hefur sú vinna gengið vel.

Í samræmi við þessa stefnu bæjarins var við mótun á nýju leiðaneti Strætisvagna Akureyrar horft sérstaklega til þess að bæta tengingar við frístundastarf, minnka skutl foreldra á vinnutíma og auka þannig lífsgæði barnafjölskyldna. Þrátt fyrir mikilvæg skref í þá átt með nýju leiðaneti, einkum fyrir börn í eldri bekkjum grunnskóla og framhaldsskólanemendur, þá hefur samráð við íbúa og íþróttafélög sýnt að nauðsynlegt er að koma betur til móts við yngstu börnin. Því hefur verið ákveðið að innleiða sérstakan frístundaakstur að fyrirmynd nokkurra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, og liggja fyrir fyrstu tillögur að fyrirkomulagi (sjá mynd).

Í meginatriðum virkar frístundastrætó þannig að börn eru sótt í alla grunnskóla og ekið á æfingar og aðrar tómstundir sem hefjast kl. 14 og 15. Einnig verða börnin sótt eftir að æfingum og tómstundum lýkur. Nokkrir bílar verða eknir hring um bæinn en byrja á mismunandi stöðum til að stytta biðtíma barnanna. Starfsmaður verður í hverjum bíl til að tryggja öryggi.

Frístundastrætó bæjarins mun leysa af hólmi rútuakstur sem íþróttafélögin Þór og KA hafa séð um fyrir yngstu iðkendur sína í fótbolta. Þannig verður fleiri börnum, sem iðka hinar ýmsu íþróttagreinar og tómstundir, gefinn kostur á að nýta sér þjónustuna.

Bæjarráð Akureyrarbæjar samþykkti á síðasta fundi beiðni frístundaráðs um 8,5 milljóna króna viðauka svo hægt sé að hefja aksturinn sem tilraunaverkefni veturinn 2021-2022. Stefnt er að því að foreldrar/forráðamenn greiði hóflegt gjald fyrir þessa þjónustu og berast nánari upplýsingar um fyrirkomulagið þegar nær dregur.

Heimild:akureyri.is