Nú fer hver að verða síðastur að sækja um á Handverkshátíð 2014.  Hátíðin sem nú verður haldin í 22. sinn velur ríflega 100 sýnendur úr fjölda umsókna.  Þeir eru lærðir sem leikir af öllu landinu og selja fjölbreytt handverk og hönnun.
Stemningin á sýningarsvæðinu er einstök, það sanna þær 15-20 þúsund heimsóknir sem sýningin fær nú árlega.

Hátíðin fer fram dagana 7. – 10.  ágúst  og rennur umsóknarfresturinn út 1. apríl.  Umsóknareyðublað og allar nánari upplýsingar má finna á www.handverkshatid.is