Lokið var við að steypa undirstöður fyrir Hálslyftu í Skarðsdal á Siglufirði þann 26. október.  Að því verki komu Bergara, Básara, Rauðkumenn o.fl.  Í undirstöður fóru um 42 m3 af steypu. Þetta verk tókst mjög vel en einungis tók 4 daga að grafa fyrir mótum, koma þeim fyrir og steypa.

Allur lyftubúnaður er kominn til Siglufjarðar og bíður þess að vera settur upp þegar steypa hefur náð styrk.  Unnið verður við rafbúnað lyftubúnað næstu daga, en markmiðið er að reisa lyftuna í kringum 15-20. nóvember og taka lyftuna í notkun 1. desember.

Það hefur ýmislegt verið gert til að bæta þjónustu við skíðafólk í Skarðsdalnum á Siglufirði. Búið er að setja upp nýtt hús á Búngusvæði með snyrtingum og pallur í kring, búið er að lagfæra og lengja Stálmastursbrekku og lýsing hefur verið bætt á því svæði. Þá er búið er að færa Markhús og byggja pall í kringum það, sem nýtist sem Mark-og Hálslyftuhús.

Það eru spennandi tímar framundan í Skarðsdalnum en markmiðið er að opna skíðasvæðið 1. desember og þar með nýja lyftu Hálslyftu sem mun gjörbreyta svæðinu.

Þegar þetta er skrifað er kominn nægur snjór á Búngusvæði og í efrihluta T-svæðis, þannig að þetta lítur allt mjög vel út.

Heimild: skard.fjallabyggd.is / Egill Rögnvaldsson

Ljósmynd: Héðinsfjörður.is