Framboðslisti VG í Norðausturkjördæmi var samþykktur á kjördæmaþingi í dag. Listann skipar fólk víðsvegar að úr kjördæminu með mikla reynslu á ólíkum sviðum.
Hér má sjá listan í heild sinni:
1. Sindri Geir Óskarsson – sóknarprestur – Akureyri
2. Jóna Björg Hlöðversdóttir – bóndi – Kinn, Þingeyjarsveit
3. Guðlaug Björgvinsdóttir – öryrki – Reyðarfirði
4. Klara Mist Olsen Pálsdóttir – leiðsögumaður og skipstjóri – Ólafsfirði
5. Tryggvi Hallgrímsson – félagsfræðingur – Akureyri
6. Jónas Davíð Jónasson – landbúnaðarverkamaður – Hörgársveit
7. Óli Jóhannes Gunnþórsson – rafvirkjanemi – Seyðisfirði
8. Aldey Unnar Traustadóttir – hjúkrunarfræðingur – Húsavík
9. Ásrún Ýr Gestsdóttir – bæjarfulltrúi – Hrísey
10. Örlygur Kristfinnsson – myndasmiður – Siglufirði
11. Ásrún Mjöll Stefánsdóttir – sveitarstjórnarfulltrúi og húsasmiður – Seyðisfirði
12. Gréta Bergrún Jóhannesdóttir – Sérfræðingur í byggðarannsóknum – Þórshöfn
13. Hlynur Hallsson – myndlistarmaður – Akureyri
14. Guðrún Ásta Tryggvadóttir – grunnskólakennari – Seyðisfirði
15. Ásgrímur Ingi Arngrímsson – skólastjóri – Fljótsdalshéraði
16. Sigríður Hlynur Helguson Snæbjörnsson – stálvirkjasmiður – Þingeyjarsveit
17. Frímann Stefánsson – stöðvarstjóri – Akureyri
18. Rannveig Þórhallsdóttir – fornleifafræðingur og kennari – Seyðisfirði
19. Steingrímur J. Sigfússon – fyrrverandi þingmaður og ráðherra – Þistilfirði
20. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir – þingmaður og fyrrverandi ráðherra – Ólafsfirði