Fræðslufundur um fjármál unga fólksins á Akureyri
Jón Jónsson hagfræðingur, tónlistarmaður og fótboltakappi fræðir ungt fólk um fjármál á skemmtilegan hátt á Hótel KEA Akureyri, mánudaginn 2. apríl.
Húsið opnar kl. 19:00 og fundurinn hefst kl. 19:30. Í lok fundar mun Jón taka nokkur lög.
Helstu atriði sem Jón fer yfir eru:
- Hvað eru peningar?
- Hvernig á að spara?
- Lærðu að velja og hafna
- Peningar og hamingja
Boðið verður upp á gos og pítsu.
Allir á aldrinum 12-16 ára eru sérstaklega velkomnir ásamt foreldrum sínum.
Skráning fer fram hér.