Björgunarsveitirnar Núpur á Kópaskeri og Stefán í Mývatnssveit voru kallaðar út síðastliðinn sunnudag til aðstoðar erlendum ferðamanni er slasaðist á fæti á gönguleiðinni frá Hólsfjallavegi, sunnan Dettifoss. Talið var að hann væri lærbeinsbrotinn.
Sjúkrabíll var sendur á bílastæðið við Dettifoss til að taka við manninum þegar búið væri að koma honum niður og fóru sjúkraflutningamenn, ásamt björgunarsveitum á slysstað. Aðeins þurfti að bera hann um 250 m í stað tæpra tveggja km eins og útlit var fyrir í upphafi.