Einn vinsælasti dagskráliðurinn á Síldarævintýrinu fyrir börn og unglinga er froðufjörið sem haldið er á sparkvellinum við Grunnskólann á Siglufirði. Umsjón er í höndum Slökkviliðs Fjallabyggðar en á svæðinu var sjálfur slökkviliðsstjórinn og forseti bæjarstjórnar Fjallabyggðar, Jóhann K. Jóhannsson. Slökkviliðsmenn sáu um að allt færi vel  fram og var góð mæting hjá yngri kynslóðinni á þennan viðburð.

Við fengum nokkrar aðsendar myndir til að birta með fréttinni.