Formlegri leit verið hætt
Formlegri leit að Grétari Guðfinnssyni, 45 ára gömlum manni frá Siglufirði, hefur verið hætt. Hans hefur verið saknað síðan 6. febrúar. Þetta kemur fram á Rúv.is kl. 13:47 í dag.
Að sögn lögreglunnar á Siglufirði munu björgunarsveitarmenn halda áfram leit á litlum bátum meðfram fjörum þegar til þess viðrar og mannskapur fæst til. Um 60 manns leituðu að Grétari í gær en leitin bar ekki árangur.
Heimild: ruv.is