Björn Snæbjörnsson mun láta af formennsku á næsta aðalfundi Einingar-Iðju. Hann hefur gegnt embætti formanns Einingar-Iðju frá árinu 1999 og Verkalýðsfélagsins Einingar þar á undan frá árinu 1992, eða samtals í 31 ár. Hann sat sem meðstjórnandi í stjórn Einingar árin 1982 til 1986 og sem varaformaður frá árinu 1986. Árin í stjórn félagsins verða því orðin 41 þegar hann hættir formennsku og óhætt að segja að það verði stór tímamót á næsta aðalfundi þegar nýr formaður mun taka við.
Sjálfkjörið í stjórn félagsins
Í gær, miðvikudaginn 22. febrúar, rann út frestur til að skila inn lista eða tillögum um fólk í stjórnarsæti vegna kjörs stjórnar og trúnaðarráðs fyrir starfsárið 2023-2024. Ekki bárust tillögur eða listar aðrir en frá trúnaðarráði og teljast þeir félagsmenn sem trúnaðarráð hefur gert tillögu um sjálfkjörnir. Listi trúnaðarráðs tekur því við félaginu á næsta aðalfundi sem fram fer mánudaginn 24. apríl nk. kl. 19:30 í Menningarhúsinu HOFI á Akureyri.
Nýr formaður
Trúnaðarráð félagsins gerði tillögu um Önnu Júlíusdóttur, núverandi varaformann félagsins, sem formann og mun hún því taka við formannstitlinum til næstu tveggja ára á aðalfundinum. Anna hefur setið sem varaformaður félagsins frá árinu 2012, en áður hafði hún setið í stjórn sem formaður Matvæladeildar og síðar formaður Matvæla- og þjónustudeildar frá árinu 2001.