Steinunn María Sveinsdóttir formaður bæjarráðs Fjallabyggðar hefur tilkynnt að hún gefi ekki kost á sér áfram í næstu kosningum til áframhaldandi starfa sem bæjarfulltrúi í Fjallabyggð.  Undanfarin fjögur ár hfeur hún verið bæjarfulltrúi í Fjallabyggð, formaður bæjarráðs og fulltrúi sveitarfélagsins í ýmsum ráðum og stjórnum.

Steinunn hefur einnig starfað sem fagstjóri á Síldarminjasafninu á Siglufirði og er sagnfræðingur að mennt.