Í nótt stóð lögregla að umfangsmiklu verkefni við að fylgja gríðarstórum húsum um þjóðveg 1 frá Víðidal í Vestur-Húnavatnssýslu og austur að Engimýri í Öxnadal.
Verkefnið hófst um kl. 01:00 í nótt og lauk rúmlega 07:00 í morgun. Flutningurinn gekk vel og án teljandi vandræða. Mikið af samvinnu og þolinmæði vegfarenda þurfti til að verkefnið gengi upp.
Meðfylgjandi myndir eru frá verkefni næturinnar og sýna vel umfang þessara flutninga, þar sem húsin voru það stór að loka þurfti vegum tímabundið á meðan þau voru á ferðinni.