Grunnskóli Fjallabyggðar hefur undanfarin ár boðið 9. og 10. bekk skólans uppá fjölda valgreinar eins og fluguhnýtingar og stangveiði. Þessar valgeinar eru kenndar í sex vikur í senn. Nú í vetur hafa um 30 nemendur af 60 valið þessar greinar. Strákarnir eru fleiri, en margar stúlkur hafa einnig valið að læra að hnýta og kasta flugu.
Stangveiðifélag Siglfirðinga hefur tekið þátt í þessari uppbyggingu sem er að eiga sér stað í Fjallabyggð. Félagið hefur boðið nemendum að veiða í Héðinsfirði og Flókadalsá í Fljótum, þegar veiðitímabilið er í fullum gangi. Stangveiðifélag Siglfirðinga, Sparisjóður Siglfirðinga og Vesturröst tóku sig saman um að gefa Grunnskóla Fjallabyggðar þrjár fullbúnar fluguveiðistangir sem notaðar verða við kennslu og veiði.
Í fluguhnýtingum er nemendum kennd undirstöðuatriðin og búa þau til flugur eins og Peecoock, Nobblera og Frances. Lokaverkefnið er svo að hanna sína eigin flugu. Í stangveiði fara nemendur í kastkennslu með flugustöngum í íþróttahúsinu á Siglufirði. Einnig fá nemendur fræðslu um allan þann búnað sem fylgir fluguveiði sem og hvernig á að umgangast náttúruna og íbúa vatna og áa.
Heimild: www.salmon.is