Sala á flugeldum hefst í dag í húsnæði Björgunarsveitarinnar Stráka við Tjarnargötu 18 Siglufirði.
Flugeldasalan er einn mikilvægasti þátturinn í fjáröflun björgunarsveita.
Fyrir þá sem kjósa að skjóta ekki upp flugeldum þá minnum við á Rótarskotin vinsælu en fyrir hvert keypt Rótarskot er gróðursett tré í reit sem Landsbjörg fékk úthlutað í Fjallabyggð.
Hægt er að skoða úrvalið og kaupa flugelda í netverslun á strakar.flugeldar.is
Pantanir eru afgreiddar á opnunartíma flugeldasölu.
Opnunartímar:
Fimmtudagur 28. desember: 18:00 – 20:00
Föstudagur 29. desember: 18:00 – 21:00
Laugardagur 30. desember: 13:00 – 22:00
Sunnudagur 31. desember: 10:00 – 15:00