Þegar Remax seldi Bakkabyggð 2 í Ólafsfirði haustið 2023, þá var þetta dýrasta húsið sem selst hefur í Ólafsfirði samkvæmt opinberum gögnum um kaupsamninga þar síðustu árin. Húsið var nýbygging og stendur við Ólafsfjarðarvatn á miklum útsýnisstað. Ásett verð fyrir þetta glæsihús var 89,9 milljónir en samkvæmt kaupsamningi seldist húsið á 83,5 milljónir. Húsið er 276 fermetrar og allt mjög vandað í alla staði.  Fimm svefnherbergi og þrjú baðherbergi eru í húsinu. Húsið var sérstaklega auglýst fyrir ferðaþjónustu, en þar er nú hægt að bóka gistingu á síðunni bakkabyggd.is.

Samkvæmt verðskránni þá kostar nóttin rúmlega 138.000 þúsund krónur og er lágmark að bóka tvær nætur. Vikan kostar þá rúmlega 921.000 kr.

Sannkölluð lúxusgisting í stórglæsilegu húsi.

Mynd frá bakkabyggd.is
Mynd frá bakkabyggd.is
Mynd frá bakkabyggd.is
Mynd frá bakkabyggd.is