Með samgönguáætlun er sett fram áætlun um uppbyggingu jarðganga með áherslu á öryggi og arðsemi. Sett er fram ný forgangsröðun með fjórum verkefnum, alls sex jarðgöngum, en ellefu aðrir jarðgangakostir verða áfram til nánari skoðunar. Stefnt er að því að undirbúningur vegna næstu jarðganga hefjist á árinu 2026 og framkvæmdir hefjist í upphafi árs 2027.
Jarðgöng eru víða eina leiðin til að tryggja góðar heilsársvegasamgöngur milli byggða. Jarðgöng auka umferðaröryggi, stytta ferðatíma, efla atvinnusvæði og styrkja byggðaþróun.
Forgangsröð jarðganga
- 1. Fljótagöng (5,2 km) – Efst í forgangslista vegna sérstaklega hættulegrar náttúruvár. Tengir Siglufjörð og Fljótin og leysa Strákagöng af hólmi.
- 2-3. Fjarðagöng (5,4 km + 7 km) – Tvenn göng frá Seyðisfirði til Mjóafjarðar (5,4 km) og frá Mjóafirði til Norðfjarðar (7 km). Rýfur vetrareinangrun Seyðisfjarðar og eflir samfélag á Austurlandi.
- 2-3. Súðavíkurgöng (nokkrir valkostir) – Tengir Súðavík og Ísafjörð og leysir af hólmi leið með grjóthrun og snjóflóðahættu.
- 4. Miklidalur og Hálfdán (nokkrir valkostir) – Tengir þrjá byggðakjarna Patreksfjörð, Tálknafjörð og Bíldudal.
Eftirtalin jarðgöng eða svæði eru áfram til nánari skoðunar: Fjarðarheiðargöng, Hvalfjarðargöng II, göng milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur, Breiðadalsleggur (breikkun), Klettsháls, Gemlufallsheiði, Öxnadalsheiði, Reynisfjall, Lónsheiði, Hellisheiði, Berufjarðargöng og Breiðdalsheiðargöng.
Innviðafélag tryggir hraðari framvindu stórra verkefna
Ríkisstjórnin hefur samþykkt að stofna innviðafélag til að flýta stærri samgönguframkvæmdum og tryggja fyrirsjáanleika í fjármögnun þeirra til lengri tíma. Þetta samkomulag er afrakstur greiningarvinnu sem hefur farið fram á vegum þriggja ráðuneyta síðustu mánuði – forsætisráðuneytis, fjármála- og efnahagsráðuneytis og innviðaráðuneytis. Frumvarp um stofnun innviðafélags verður lagt fram á vorþingi.
Innviðafélagið verður sjálfstætt félag og verður að fullu í eigu ríkisins. Félagið mun geta tekið að sér fjármögnun og eignarhald samgöngumannvirkja á grundvelli samnings við stjórnvöld. Þannig er stefnt að því að tryggja samfellu og aukinn fyrirsjáanleika í útgjöldum ríkisins til stærri samgönguframkvæmda, svo sem til jarðgangagerðar.
Stoðir í fjármögnun félagsins verða meðal annars árlegt eiginfjárframlag samkvæmt samningi við ríkið, gjaldtaka af samgöngumannvirkjum í eigu félagsins og lánsfjármögnun með ríkisábyrgð með endurlánum. Einnig getur komið til fjárfesting lífeyrissjóða eða annarra fjárfesta. Stefnt er að því að félagið geti tekið við tilteknum samgönguinnviðum sem þegar eru til staðar eða í byggingu.
Ráðgert er að fyrstu verkefni félagsins verði Ölfusárbrú, Sundabraut, Fljótagöng og næstu jarðgöng samkvæmt samgönguáætlun.