Skólastarfið í Menntaskólanum á Tröllaskaga er hafið á ný eftir gott sumarfrí og er fyrstu kennsluvikunni lokið. Nýnemar, í hópi staðnema, eru fleiri en síðustu annir og mátti sjá tilhlökkun og kvíða meðal þeirra sem eðlilegt er á fyrsta degi. Eldri nemendur gengu til sinna verka af yfirvegun og aðstoðuðu einnig nýnemanna fyrstu skrefin. Flestir staðnemanna koma úr Fjallabyggð en einnig frá Dalvíkurbyggð og úr Eyjafjarðarsveit.

Líkt og síðustu annir eru meira og minna allir áfangar sem eru í boði fullsetnir. Skráðir nemendur eru á sjöunda hundrað, meirihluti þeirra fjarnemar. Fyrstu skil verkefna er nú á sunnudaginn og er því skólinn kominn á fullan snúning.