Dalvík/Reynir mætti Selfossi á Jáverk-vellinum í 15. umferð 2. deildar karla. Selfoss liðið er í baráttunni um 1-2. sæti deildarinnar. D/R liðið hafði tapað þremur leikjum fyrir þennan leik og áttu von á sterku Selfoss liði. Fyrri leikur liðanna í vor endaði með 2-2 jafntefli.
Dómarinn minnti strax á sig á 1. mínútu leiksins og gaf Hirti Ævarssyni gult spjald hjá D/R. Það voru heimamenn sem byrjuðu leikinn vel og skoruðu strax á 8. mínútu leiksins með marki frá Aron Lucas Vokes. Hann var aftur á ferðinni á 23. mínútu og var staðan orðin 2-0.
D/R náði að svara fljótlega og skoraði Aires Sousa glæsilegt mark á 29. mínútu leiksins. Staðan var 2-1 í hálfleik.
Þjálfari D/R gerði tvöfalda skiptingu í hálfleik og fóru Hjörtur Ævarsson og Sævar Þór Fylkisson útaf fyrir Atla Þór Sindrason og Gabriel Lukas Freitas.
Bæði lið gerðu fleiri skiptingar í síðari hálfleik en mörkin urðu ekki fleiri. Lokatölur 2-1 og fjórða tap D/R í röð í deildinni. Liðið er enn með 20 stig og er nú í 7. sæti. Fjölnir í 4. sætinu er með 22 stig og pakkinn þéttur.