Akureyrarbær hefur auglýst fjórar íbúðalóðir við Austurveg í Hrísey lausar til úthlutunar. Lóðirnar eru fyrir parhús eða fjórbýlishús og einbýlishús.
Austurvegur 15: heimilt er að byggja parhús eða fjórbýlishús á tveimur hæðum. Stærð lóðarinnar er 1320 m2 og hámarksbyggingarmagn 360 m2.
Austurvegur 17: heimilt er að byggja parhús eða fjórbýlishús á tveimur hæðum. Stærð lóðarinnar er 1362 m2 og hámarksbyggingarmagn 360 m2.
Austurvegur 19: heimilt er að byggja einbýlishús á tveimur hæðum. Stærð lóðarinnar er 1174 m2 og hámarksbyggingarmagn 300 m2.
Austurvegur 21: heimilt er að byggja einbýlishús á tveimur hæðum. Stærð lóðarinnar er 1174 m2 og hámarksbyggingarmagn 300 m2.
Sækja þarf um lóðirnar fyrir kl. 12:00 þann 2. október næstkomandi.