Fjórar áramótabrennur verða í Skagafirði á gamlárskvöld. Á Sauðárkróki, á Hofsósi, á Hólum og í Varmahlíð og hefjast þær kl 20:30 á öllum stöðum. Brennan á Sauðárkróki verður neðan við iðnaðarsvæðið norðan við áhaldahús sveitarfélagsins,  á Hofsósi á Móhól, á Hólum sunnan við Víðines og í Varmahlíð við afleggjarann í Efribyggð.

Björgunarsveitirnar verða með flugeldasýningar á öllum stöðunum og hefjast þær kl 21.

Heimild: skagafjordur.is