Sveitarfélagið Fjallabyggð hefur auglýst fjölbreytt sumarstörf á vef sínum. Helstu störf eru sláttugengi, vélamaður, skógrækt, starfsmaður á þjónustumiðstöð, vinnuskóli Fjallabyggðar, Íþróttamiðstöð Fjallabyggðar og yfirmaður umhverfisverkefna. Umsóknarfrestur allra starfa er til og með 3. maí. Allar nánari upplýsingar fást á vef Fjallabyggðar.
Eftirtalin sumarstörf hjá Fjallabyggð eru laus til umsóknar:
Yfirmaður umhverfisverkefna. Auglýstar eru tvær stöður yfirmanns umhverfisverkefna, annars vegar á Ólafsfirði og hins vegar á Siglufirði. Hann skipuleggur og stýrir umhverfisverkefnum í Fjallabyggð og hefur umsjón með sláttugengi sem sinnir slætti og umhirðu á opnun svæðum. Starfstímabil er frá 15. maí – 15. september. Leitað er eftir einstaklingum sem eru 25 ára eða eldri, skipulagðir og sjálfstæðir í starfi. Reynsla af garðyrkju og öðrum verkefnum á opnum svæðum æskileg.
Sláttugengi – Þjónustumiðstöð auglýsir eftir starfsmönnum til að sinna slætti og umhirðu á opnum svæðum. Starfstímabil er frá 27. maí til 16. ágúst. Umsækjendur þurfa að vera 16 ára (f.2002) og eldri.
Starfsmaður í skógrækt. Auglýst er eftir starfsmanni til að sinna viðhaldsverkefnum í Skógrækt Siglufjarðar. Starfstímabil er frá 18. júní – 16. ágúst. Reynsla af skógræktarvinnu æskileg.
Þjónustumiðstöð Fjallabyggðar auglýsir eftir starfsmönnum í almenna verkamannavinnu. Helstu verkefni; girðingarvinna, málun gangbrauta og annarra merkinga, hreinsun leiksvæða og opinna svæða. Starfstímabil er frá 27. maí – 16. ágúst.
Vélamaður. Auglýst er eftir vélamanni til að vinna við garðslátt og umhirðu á opnum svæðum. Umsækjendur þurfa að vera 18 ára og hafa dráttarvélaréttindi. Starfstímabil er frá 27. maí – 16. ágúst.
Vinnuskóli Fjallabyggðar auglýsir eftir flokksstjórum til að starfa við skólann. Starfstímabil er frá 27. maí til 16. ágúst. Umsækjendur þurfa að vera 20 ára og eldri. Flokksstjórar stjórna daglegu starfi vinnuflokka skólans og stuðla að reglusemi, ástundun og góðri umgengni starfsmanna. Flokksstjórar vinna með unglingunum og sýna þeim hvernig staðið skuli að verki og leiðbeina um notkun á áhöldum og tækjum.
Íþróttamiðstöð Fjallabyggðar vantar starfsmenn á Siglufirði og Ólafsfirði. Starfstímabil er frá 11. júní – 19. ágúst. Leitað er að einstaklingum 20 ára og eldri sem hafa þekkingu í skyndihjálp og standast kröfur sem gerðar eru til sundvarða sem felast í því að taka sundpróf samkvæmt reglugerð um öryggi á sundstöðum.
Allar nánari upplýsingar um störfin er hægt að nálgast hjá: haukur@fjallabyggd.is vegna flokkstjóra og íþróttamiðstöðva. armann@fjallabyggd.is og Birgir bæjarverkstjóri s: 893 1467 vegna annarra auglýstra starfa.