Fjárhagsáætlun Fjallabyggðar fyrir árið 2026 og þriggja ára áætlun fyrir árin 2027 – 2029 hefur verið lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn Fjallabyggðar.  Þórir Hákonarson bæjarstjóri kynnti fjárhagsáætlun Fjallabyggðar á fundi bæjarstjórnar 5. nóvember síðastliðinn.  Áætlunin sýnir rekstraráætlun, áætlaðan efnahagsreikning og sjóðsstreymi fyrir sveitarfélagið og stofnanir þess.  Sorphirðugjöld lækka í kr. 85.000 úr kr. 95.000 kr. Gjaldskrár og þjónustugjöld hækka að jafnaði um 4% frá 1. janúar. -Frístundastyrkur fyrir börn á aldrinum 4 – 18 ára hækkar í kr. 52.000 úr kr. 50.000 miðað við áætlaða verðlagsþróun sem er 4%.

Í A-hluta er Aðalsjóður auk Þjónustumiðstöðvar og Eignasjóðs. Í B-hluta eru Veitustofnun, Hafnarsjóður, Íbúðasjóður og Hornbrekka, auk hlutdeildarfélaga sem koma inn í reikningsskil sveitarfélagsins eftir hlutfallslegri ábyrgð bæjarfélagsins.

Helstu niðurstöður fjárhagsáætlunar fyrir árið 2026 gera ráð fyrir að rekstrartekjur Fjallabyggðar nemi 4.518.743 m.kr. hjá samstæðunni í heild, A- og B-hluta, þar af eru rekstrartekjur A-hluta áætlaðar 3.933 m.kr. Rekstrargjöld án fjármagnsliða og afskrifta eru áætluð 4.267 m.kr., þar af A-hluti 3.764 m.kr.

Framlögð áætlun byggir á eftirfarandi meginforsendum:
– Útsvarsprósenta er óbreytt milli ára þ.e. 14,70%.

– Hækkun útsvarstekna er áætluð 5,8% frá áætlun 2025.

– Álagningarhlutföll fasteignaskatta, lóðarleigu, vatns- og fráveitugjalda breytast nokkuð og vegna verulegrar hækkunar á fasteignamati íbúðarhúsnæðis er gert ráð fyrir að álagningarhlutföll lækki og gjöld í heild lækki á íbúðarhúsnæði. Gert er ráð fyrir því í áætlun að álagningarhlutfall fasteignaskatta lækki úr 0,460% í 0,44%, að lóðarleiga lækki úr 1,8% í 1,2% og álagningarhlutfall vatnsgjalds og fráveitugjalds lækki úr 0,27% í 0,24%.

– Varðandi launakostnað liggja forsendur nokkuð vel fyrir þar sem kjarasamningar gilda almennt út árið 2026 en rétt er að vekja athygli á því að veruleg hækkun er á milli áætlana 2025 og 2026 þar sem áætlun líðandi árs tók ekki breytingum í samræmi við launahækkun sem varð á miðju árinu.

– Afsláttur af fasteignaskatti hjá tekjulágum elli- og örorkulífeyrisþegum verður að hámarki kr. 105.000 og fylgir almennri verðlagsþróun.

– Tekjumörk fyrir afslætti hækka í samræmi við launavísitölu.

Rekstrarhagnaður A- og B-hluta fyrir afskriftir og fjármagnsliði er áætlaður 252 m.kr. Afskriftir nema 257 m.kr. og fjármagnstekjur umfram fjármunagjöld 5,3 m.kr. Rekstrarhalli samstæðunnar í heild A- og B-hluta er áætlaður samtals um 1 milljón króna.

Rekstrarhagnaður A-hluta fyrir afskriftir og fjármagnsliði er áætlaður 169 m.kr. Afskriftir nema 196 m.kr. Fjármagnstekjur umfram fjármagnsgjöld nema 32 m.kr. Rekstrarniðurstaða A-hluta sveitarsjóðs er því áætluð jákvæð um 4,7 milljónir króna.

Eignir Fjallabyggðar eru áætlaðar í árslok 2026, 6.700 m.kr., þar af eru eignir A-hluta 5.400 m.kr. Skuldir og skuldbindingar eru áætlaðar í árslok 2.852 m.kr, hefðbundnar langtímaskuldir eru aðeins 113 milljónir sem eru afar litlar skuldir í öllum samanburði en lífeyrisskuldbindingar eru hins vegar um 2 milljarðar.
Eigið fé er áætlað 4.953 í árslok m.kr hjá samstæðunni og eiginfjárhlutfall 63,5%. Eigið fé A-hluta er áætlað 4.242 m.kr. Áætlunin gerir ráð fyrir að veltufé frá rekstri A-hluta verði 393m.kr. og að veltufé frá rekstri samstæðunnar A- og B-hluta verði samtals 459 m.kr.

Skuldaviðmið Fjallabyggðar samkvæmt reglugerð 502/2012 verður samkvæmt áætlun 37,2% en hámarks skuldaviðmið er 150%.

Fyrir árin á eftir er rekstrarniðurstaða samstæðunnar áætluð jákvæð fyrir árið 2027 um 67 m.kr., fyrir árið 2028 um 96 m.kr. og fyrir árið 2029 um 131 m.kr.

Gert er ráð fyrir að veltufé frá rekstri fyrir árið 2027 verði 485 m.kr., fyrir árið 2028 verði það 514 m.kr. og fyrir árið 2029 verði það 544 m.kr.

Gera má ráð fyrir breytingum á milli umræðna þegar betur liggja fyrir tillögur í fjárfestingar og hugsanlega lántöku vegna knatthúss. Ítarleg greinargerð með fjárhagsáætlun verður lögð fram tímanlega fyrir síðari umræðu í bæjarstjórn sem áætluð er 27. nóvember 2025.