Skráning er í gangi í Fjarðarhlaupið sem haldið verður í Fjallabyggð laugardaginn 15. ágúst næstkomandi. Fjölbreyttar leiðir í boði fyrir alla. Keppnishaldari er Skíðafélag Ólafsfjarðar. Hlaupin hefjast á Siglufirði, Héðinsfirði og í Ólafsfirði.
Hlaup í boði:
32 km. Fjallahlaup frá Siglufirði til Ólafsfjarðar, þar sem keppni hefst við Sigló hótel og er fyrir 17 ára og eldri.
18 km. Fjallahlaup fyrir 12 ára og eldri frá Héðinsfirði til Ólafsfjarðar.
12. km utanvegarhlaup frá Kleifum í Ólafsfirði, með endamark í miðbæ Ólafsfjarðar.
5 km og 10 km skemmtiskokk í Ólafsfirði.
Barnahlaup 0,5 km,1 km og 1,5 km
32 km Fjallahlaup (17 ára og eldri)
Heildarhækkun: 1.291m
Drykkjarstöðvar: 2
GPX track: væntanlegt
ITRA stig: 2
Eftir frábær viðbrögð frá hlaupinu 2025, metþátttöku og brautarmet, endurtökum við leikinn með alvöru fjallahlaupi frá Siglufirði til Ólafsfjarðar. Ræst verður frá Sigló Hótel og hlaupið sem leið liggur inn Hólsdal í Siglufirði og upp í Hólsskarð. Þar er stefnan tekin niður Ámárdal, niður í Héðinsfjörð að Héðinsfjarðargöngum. Þá er stefnan sett á Víkurdal yfir Rauðskörð og niður Ytri-árdal að Kleifum í Ólafsfirði. Endamark er í miðbæ Ólafsfjarðar og er leiðin alls um 32 km löng. Farið yfir tvo fjallgarða sem báðir eru í um 600 m hæð yfir sjó.
Heildarhækkun: 656m
Drykkjarstöðvar: 1
GPX track: væntanlegt
ITRA stig: 1
Ræst er frá Héðinsfjarðargöngum og hlaupið sem leið liggur að Víkurdal, hlaupið inn dalinn og yfir Rauðskörð (600m) og niður Ytri-árdal að Kleifum í Ólafsfirði. Endamark er í miðbæ Ólafsfjarðar og er leiðin alls rúmlega 18 km löng. Hér mælum við með að börn séu í fylgd með fullorðnum.
NÝTT-NÝTT 12 km utanvegahlaup
Drykkjarstöðvar: 0
Ræst er í miðbæ Ólafsfjarðar og hlaupinn 5 eða 10 km hringur á götum og stígum. Hlaup sem hentar öllum.
Video track af skemmtiskokkinu 5/10km
Gönguferð undir leiðsögn Maríu Bjarney Leifsdóttur, tilvalin valkostur fyrir göngufólk eða þá sem treysta sér ekki til að hlaupa meiri hluta leiðarinnar.
Ræst er í miðbæ Ólafsfjarðar.. Hlaupið ætlað 5 ára og yngri, 6-8 ára og 9-10 ára.
5/10 km, skemmtiflokkur fyrir alla, þátttakandi ræður vegalengd, 4.000 kr.
Gönguferð með leiðsögn 5.000 kr.
18 km, fjallahlaup 12 ára og eldri, 8.000 kr.
32 km, fjallahlaup 17 ára og eldri, 12.000 kr.
Dagskrá fyrir laugardaginn 15. ágúst:
kl: 10:00 Ræst út frá Sigló Hótel
Álteppi, flauta og hlaðinn sími skilyrði!
kl: 11:00 Ræst út í Héðinsfirði.
Skráning og ræsing við Kaffi Klöru
kl 12:20 Ræst út frá Kaffi Klöru