Fjarðarhjólið verður haldið laugardaginn 7. september á Ólafsfirði. Fjarðarhjólið er rafhjólakeppni í krefjandi braut auk þess sem í boði er skemmtihjól sem allir geta tekið þátt í óháð hvernig hjól eru notuð.
Flott umgjörð, tónlist, drykkjarstöð, tvö viðgerðarsvæði, veitingar eftir keppni, úrdráttarverðlaun og allir fá þátttöku verðlaun. Skráðir keppendur nálgast nú 50.
Hér má sjá brautina fyrir Rafhjólakeppnina
Hér má sjá brautina fyrir Skemmtihjólið
Vegalengdir í Fjarðarhjólinu:
30 km, (3x10km) RAFHJÓL, karlar og konur 17 ára og eldri
20 km, (2X10km) RAFHJÓL, karlar og konur 17 ára og eldri
18km, skemmtihjól fyrir alla, hjólað kringum Ólafsfjarðarvatn
Dagskrá laugardaginn 7. sept:
11:00 Rafhjólaflokkur ræstur 10km, 20km og 30 km
11:00 Skemmtihjól 18km