Síðastliðinn laugardag fór fram á Húsavík 3. umferðin í Fjallalambsdeildinni í blaki. Liðin hafa verið í góðri pásu yfir hátíðirnar og mættu öflug til leiks á nýju ári. KA menn frá Akureyri höfðu allt að vera í þessari umferð þar sem þeir höfðu unnið fyrstu tvær umferðirnar og voru því í góðri stöðu á toppi deildarinnar áður en keppnin hófst. Það er óhætt að segja að leikmenn komu vel undan jólafríinu því liðin spiluðu oft á tíðum alveg hörkublak og leikir milli efstu liða voru spennandi og skemmtilegir. Stemningin var líka góð á Húsavík og mikið var af áhorfendum.
Eftir harða keppni kom það svo í hlut Völsungs og KA manna að leika til úrslita á mótinu og úr varð hörkuleikur sem KA vann naumlega 2 – 0 þar sem hrinurnar enduðu 18 – 21 og 20 – 21 og fylgir KA þar með eftir góðum árangri úr fyrstu tveim umferðunum. Rimar tryggðu sér síðan 3. sætið með því að leggja Hyrnuna með 1 stigs mun í hörkuleik.
Staðan í deildinni eftir þessar þrjár umferðir er þá þannig:
- KA – 19 stig
- Völsungur – 13 stig
- Rimar – 10 stig
- Hyrnan – 6 stig
- Snörtur – 3 stig