Fjallabyggð er að vinna í eftirlitskerfi með fráveitunni í Ólafsfirði. Óskað hefur verið eftir að gerð verði úttekt á fráveitunni í Ólafsfirði líkt og gert hefur verið á Siglufirði og verði þeirri vinnu hraðað eins og kostur er.

Á Siglufirði hefur verið unnið að endurbótum á dælubúnaði og einnig hefur verið fjárfest í varaaflstöð fyrir dælubúnað.