Fjallabyggð hefur úthlutað Menningar- og fræðslutengdum styrkjum fyrir árið 2022. Úthlutað er í eftirfarandi flokkum; Styrkir til menningarmála (einstök menningartengd verkefni), styrkir til hátíðarhalda og styrkir til reksturs safna og styrkir til fræðslumála.
Umsækjendur um styrki hafa fengið tilkynningu um úthlutun á íbúagátt Fjallabyggðar. Þeir sem ekki sóttu um rafrænt fá bréf sent með pósti.
Bæjarstjórn Fjallabyggðar hefur samþykkt að veita styrki til þessara flokka á árinu 2022 að upphæð kr. 8.935.000.- Þar af fara kr. 2.700.000.- til einstakra menningartengdra verkefna, kr. 3.050.000.- til hátíðarhalda og kr. 2.950.000.- til reksturs safna og setra og kr. 235.000.- til fræðslumála.
Frá þessu var greint á vef Fjallabyggðar í dag.