Fjallabyggð, UMFÍ og UÍF undirrituðu samstarfssamning í gær vegna framkvæmdar á Landsmóti UMFÍ 50+ sem haldið verður í Fjallabyggð dagana 27. – 29. júní 2025.
Fjölmargir frá íþróttahreyfingunni í Fjallabyggð sáu sér færi á að mæta, sem sýnir hversu mikil eftirvænting ríkir fyrir þessu einstaka móti.
Óskar bendir á að aðildarfélög UÍF hafi um árabil staðið hvert fyrir sínum viðburði, skíðamótum, vélsleðamótum og blakmótum eins og því sem er á dagskrá um helgina. UÍF hafi hins vegar ekki staðið fyrir viðburðum eins og Landsmóti UMFÍ 50+.
„Þetta mót mun væntanlega sameina félögin í verkefninu. Hljóðið er líka svo gott í fólki. Við búin að manna framkvæmdanefndina og vel það,“ heldur hann áfram.
Óskar er ánægður með formannafundinn, sem var vel sóttur en í kringum 50 fulltrúar allra aðildarfélaga hafi mætt.
Ómar Bragi kynnti mótið fyrir fundargestum og fór yfir helstu keppnisgreinar, sem munu fara fram bæði á Siglufirði og Ólafsfirði.
Landsmót UMFÍ 50+ er blanda af íþróttakeppni og annarri keppni, hreyfingu og því að fá fólk á besta aldri til að hafa gaman saman. Mótið er öllum opið sem verða 50 ára á árinu og eldri.
Þátttakendur þurfa ekki að vera skráðir í íþróttafélag, allir geta tekið þátt og á sínum forsendum.
Gert er ráð fyrir að tjaldsvæðið mótsins verði á Ólafsfirði.
Keppt verður í að minnsta kosti 13 mismunandi greinum:
- Boccía
- Bridds
- Frjálsar íþróttir
- Golf
- Petanque
- Píla
- Pokavarp
- Pútt
- Pönnukökubakstur
- Ringó
- Skotfimi
- Stígvélakast
- Sund