Fjallabyggð og Félag eldri borgara í Ólafsfirði hafa undirritað samning vegna húseignarinnar Bylgjubyggð 2, húsi eldri borgara.
Þar með verður Fjallabyggð þinglýstur eigandi hússins og tekur yfir rekstur hennar. Félag eldri borgara mun fá endurgjaldslaus afnot af hluta hússins fyrir félagsstarf sitt.
Fjallabyggð ráðstafar öðrum hlutum hússins fyrir starfsstöð Bókasafns Fjallabyggðar, og aðstöðu fyrir starfsfólk stjórnsýslu og nefndarstörf.
Samhliða þessum breytingum verður húseignin að Ólafsvegi 4 í Ólafsfirði sett á sölu.
Bæjarstjóri Fjallabyggðar og stjórn Félags eldri borgara í Ólafsfirði eru þess fullviss að um sé að ræða breytingar til góðs. Bæði fyrir félagsstarf eldri borgara og starfsemi Fjallabyggðar.
Framundan eru breytingar á húseigninni sem útfærðar verða í samráði við stjórn Félags eldri borgara í Ólafsfirði.
Heimild og mynd: Fjallabyggð.is