Gunnari Birgissyni bæjarstjóra Fjallabyggðar hefur verið falið að undirrita samning um yfirtöku á götulýsingarkerfi til eignar í sveitarfélaginu Fjallabyggð.
Með samningnum mun Fjallabyggð eignast götulýsingarkerfi RARIK í sveitarfélaginu, í því ástandi sem það er við undirritun samnings. Sambærilegir samningar hafa verið gerðir í öðrum sveitarfélögum eins og Fjarðarbyggð.
Þá hefur Fjallabyggð heimilað að gera lokaða verðkönnun vegna endurnýjunar á götulýsingu.
Eftirfarandi birgjum yrði gefinn kostur á að bjóða í verkið:
Johan Rönning hf
Reykjafell hf
O. Johnson & Kaaber hf
S. Guðjónsson hf
Ískraft hf
Smith & Norland hf
Fálkinn
Jóhann Ólafsson hf
Rafmiðlun hf.