Hollvinasamtök Reykjalundar hafa leitað til sveitarfélaga í landinu um að taka virkan þátt í uppbyggingu Reykjalunds í Mosfellsbæ með fjárframlagi. Föstudaginn 2. október 2026 standa samtökin ásamt RÚV fyrir landssöfnun fyrir brýnni uppbyggingu húsakosts Reykjalundar.
Bæjarráð Fjallabyggðar hefur samþykkt að styrkja söfnunina um kr. 100.000, því bæjarráð telur að Reykjalundur sé mikilvægur hlekkur í heilbrigðisþjónustu landsins.
Bæjarráð Fjallabyggðar hvetur jafnframt fyrirtæki og einstaklinga til að taka þátt í átakinu.