Fjallabyggð ætlar að ganga til viðræðna við ferðaþjónustufyrirtækið Evanger um rekstur upplýsingamiðstöðva næsta sumar. Skilyrði er að veitt verði þjónusta bæði á Siglufirði og í Ólafsfirði. Horft er til þess að samstarf verði við Pálshús um upplýsingagjöf og miðlun gagna á Ólafsfirði.
Evanger sf. hefur verið í ferðaþjónustu á Siglufirði frá árinu 2022.