Bæjarráð Fjallabyggðar hefur samþykkt að á árinu 2021 verði nýliðun í slökkviliði Fjallabyggðar um alls sex slökkviliðsmenn, þrjá í hvorum byggðarkjarna. Áætlaður kostnaður vegna launa, menntunar og búnaðar er 3.128.886 kr.
Nýr slökkviliðsstjóri Fjallabyggðar hefur skipað í tvær varðstjórastöður, eina á Siglufirði og eina í Ólafsfirði.