Fulltrúar Vegagerðarinnar hafa upplýst Fjallabyggð að fyrirhugað er að fara í umtalsverðar aðgerðir og rannsóknir nú á haustdögum til þess að reyna að koma í veg fyrir vatnsleka í Héðinsfjarðargöngum. Auk þess verður farið í viðgerð á veginum á þeim kafla sem verst er farinn.

Vanalega er ekki farið í slíkar framkvæmdir yfir sumartímann vegna mikillar umferðar og þar af leiðandi öryggis og því eru framkvæmdir áætlaðar í haust.