Í gær var undirritaður samningur milli Fjallabyggðar og Dalvíkurbyggðar um gagnkvæma viðurkenningu á kortum íþróttamiðstöðva sveitarfélaganna. Samningurinn felur í sér að korthafar í einu sveitarfélagi geta framvegis nýtt kortin sín í sundlaugum hins sveitarfélagsins án aukakostnaðar. Þetta eykur aðgengi íbúa að sundlaugum sveitarfélaganna og stuðlar að auknu samstarfi og samvinnu.

Samkomulagið nær eingöngu til sundlauga, ekki til líkamsræktaraðstöðu íþróttamiðstöðvanna í sveitarfélögunum.

Með þessari samvinnu er stigið jákvætt skref í þá átt að efla þjónustu við íbúa beggja sveitarfélaga og stuðla að meiri hreyfingu og vellíðan.