Bæjarráð Fjallabyggðar hefur samþykkt auglýsa nokkur störf vegna reksturs á Skíðasvæðinu í Skarðsdal á Siglufirði. Um er að ræða tvær heilar stöður í 100% vinnu auk tveggja starfsmanna til að sinna vinnu á snjótroðurum á svæðinu. Auglýsing hefur ekki formlega verið birt en fjallað var um málið á fundi 17. september.

Starfsmenn sem auglýst verður eftir:
-Umsjónarmanns Skíðasvæðisins í Skarðsdal, 100% starf
-Almennur starfsmaður, 100%
-Tveir starfsmenn til að sinna vinnu á snjótroðurum.