Fjallabyggð vinnur nú að því að meta umfang og orsök tjóna sem húseigendur og aðrir urðu fyrir síðastliðna helgi. Hluti af þeirri vinnu felst í því að skoða tryggingalega stöðu sveitarfélagsins Fjallabyggðar gagnvart þeim atburðum sem áttu sér stað.
Fjallabyggð hvetur húseigendur til þess að taka saman gögn og upplýsingar um áætlað tjón og senda inn erindi í gegnum vef sveitarfélagsins, “Ábendingar og fyrirspurnir“. Óskað er eftir því að erindinu fylgi stutt lýsing á umfangi tjónsins.
Fjallabyggð mun svo í framhaldinu kalla eftir frekari upplýsingum og gögnum og vinna með hverja tilkynningu í samráði við húseigendur.
Fjallabyggð hvetur jafnframt alla sem urðu fyrir tjóni að tilkynna slíkt til síns tryggingafélags.