Fjallabyggð hefur samþykkt að lána Sýslumanninum á Norðurlandi eystra listaverk í eigu sveitarfélagsins gegn lántökugjaldi eins og reglur Fjallabyggðar segja til um. Sýslumannsembættið hyggst fá 6-8 verk að láni frá Listasafni Fjallabyggðar.