Fjallabyggð hefur óskað eftir tilboðum í hönnun og byggingu knatthúss í Ólafsfirði samkvæmt útboðs- og verklýsingu. Um er að ræða alútboð þar sem bjóðandi skal sjá um alla hönnun mannvirkisins og byggingu þess samkvæmt forskrift verkkaupa. Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 31. desember 2026. Knattspyrnufélag Fjallabyggðar mun njóta góðs af þessu húsi þegar æfa þarf utan sumartíma. Gert er ráð fyrir að önnur starfsemi geti einnig notið góðs af húsinu.
Verkþættir í verkinu eru meðal annars:
- Knatthús Stálgrind og klæðning
- Burðarvirki – steypa undirstöður húss
- Lágbygging – Anddyri, salerni, geymsla
- Hönnun – Öll hönnun bygginga
- Lagnir og loftræsing í knatthús og lágbyggingu
- Raflagnir Í knatthús og lágbyggingu