Fjallabyggð hafnaði eina tilboðinu í viðbyggingu við sundlaugina
Bæjarráð Fjallabyggðar hefur samþykkt að hafna eina tilboðinu sem barst í viðbyggingu Íþróttamiðstöðvarinnar á Siglufirði. Tilboðið sem barst var uppá 263.888.268 kr. sem er 19% yfir kostnaðaráætlun verksins.
Ástæða höfnunar er að tilboð sem barst var töluvert hærra en kostnaðaráætlun gerði ráð fyrir, ákvörðunin er einnig tekin í ljósi mikillar óvissu í efnahagsmálum þjóðarinnar.
Frá þessu var fyrst grein á vef Fjallabyggðar og í fundargerð.