Fjallabyggð hefur ákveðið að gefa íbúum sínum fjölnota poka úr lífrænni bómull. Pokarnir munu liggja frammi á Bókasafni Fjallabyggðar í Ólafsfirði og á Siglufirði eftir áramótin. Frá þessu er greint á vef Fjallabyggðar.