Um síðustu helgi fór fram Meistaramót Aftureldingar í Mosfellsbæ. Keppt var í þremur deildum í öllum greinum. Tennis- og Badmintonfélag Siglufjarðar var með fimm keppendur á mótinu en mjög langt síðan félagið hefur verið með svona marga keppendur á fullorðinsmóti.
Marínó Örn Óskarsson varð þrefaldur meistari í 2. deild þar sem hann sigraði tvíliðaleikinn með Felix frá TBR og tvenndarleikinn með Kamillu Maddý.
Kamilla varð svo í 2.sæti í einliðaleik í 2. deild og 2. sæti í tvíliðaleik í 1.deild með Ioannu. Ioanna og Ikmal þjálfari hjá TBS spiluðu í úrvalsdeild í tvenndarleik og enduðu í 2. sæti.
Sebastían Amor Óskarsson var í 2. sæti í einliðaleik í 1.deild.
Frábær árangur hjá þessu unga fólki frá TBR á mótinu.