Evrópumeistararnir í hópfimleikum munu enn og aftur sýna og kenna fimleika á ferð sinni um landið í sumar. Í fyrra heimsótti hópurinn Fjallabyggð og ætlar að endurtaka leikinn nú í næstu viku.  Hópurinn verður með sýningu í íþróttamiðstöðinni á Siglufirði þriðjudaginn nk. klukkan 16:00.  Að sýningu lokinni gefst krökkum og unglingum kostur á að hljóta leiðsögn frá Evrópumeisturunum í fimleikum á um klukkustundarlöngu fimleikanámskeiði.  Þátttaka í fimleikanámskeiðinu kostar 1.000 kr.

Allur ágóði af kennslunni fer í sjóð til að fjármagna ferð hópsins á Evrópumeistaramótið í Århus í haust þar sem hópurinn freistar þess að verja Evrópumeistaratitil Íslands.
Heimsóknin á Siglufjörð er liður í Fimleikahringnum sem er samstarfsverkefni Íþróttafélagsins Gerplu, UMFÍ og Olís.  Tilgangur Fimleikahringsins er að kynna hópfimleika fyrir landsbyggðinni og vekja athygli á Ungmennalandsmóti UMFÍ sem fram fer um Verslunarmannahelgina á Selfossi.
Hér má finna tengil á fésbókarsíðu Fimleikahringsins en þar má finna myndir frá fyrri ferðum hópsins um landið. http://www.facebook.com/#!/fimleikahringurinn

Texti: Innsent efni / Björn Björnsson.