Ferðaþjónustuaðilar funda í Dalvíkurbyggð
Ferðaþjónustuaðilum í Dalvíkurbyggð er boðið til fundar hjá Atvinnumála- og kynningarráði Dalvíkurbyggðar, miðvikudaginn 6. mars í Upsa á 3. hæð Ráðhússins frá kl 8:15-10:00.
Efni fundarins er að fara yfir stöðu ferðaþjónustu á svæðinu og ræða m.a. verkefni á næstunni og framtíðarhorfur.
Þeir ferðaþjónustuaðilar sem ekki hafa fengið boð og vilja sitja fundinn eru beðnir um að hafa samband við þjónustu- og upplýsingafulltrúa heidrun@dalvikurbyggd.is.
Frá þessu er greint á vef Dalvíkurbyggðar.