Ferðaklasi Fjallabyggðar, sem stofnaður var á vordögum 2026, hefur opnað nýja vefsíðu, visittrollpeninsula.com. Vefurinn er mikilvægur liður í því að auka sýnileika Fjallabyggðar meðal ferðamanna og kynna svæðið sem fjölbreyttan og spennandi áfangastað allt árið.

Ferðaklasinn er samstarfsvettvangur fyrirtækja í ferðaþjónustu, sveitarfélagsins og annarra hagaðila í Fjallabyggð. Markmið hans er að efla samstarf, styðja við þróun ferðaþjónustunnar og samræma kynningu svæðisins. Formaður stjórnar er Ólöf Ýrr Atladóttir og verkefnastjóri er Sanna Nordahl.

Á nýja vefnum geta gestir kynnt sér afþreyingu, gistingu, veitingar, menningu og náttúru svæðisins. Þar er einnig sérstakt félagasvæði þar sem félagsmenn geta nálgast upplýsingar, verkfæri og sameiginleg gögn.

Opinn haustfundur og mótun sameiginlegrar ímyndar

Ferðaklasinn hélt opinn haustfund þriðjudaginn 22. september þar sem starf klasans og verkefnin framundan voru kynnt fyrir félagsmönnum og öðrum áhugasömum íbúum Fjallabyggðar.

Á fundinum tóku þátttakendur þátt í könnun um ímynd Fjallabyggðar og þau einkenni og gildi sem þeir tengja við svæðið. Könnunin er liður í verkefni um stefnumótun fyrir ferðaþjónustu í Fjallabyggð sem styrkt er af SSNE. Niðurstöðurnar verða nýttar við mótun sameiginlegrar ímyndar og vörumerkis áfangastaðarins.

Fulltrúar Markaðsstofu Norðurlands kynntu jafnframt starfsemi stofunnar og helstu verkefni.

„Við viljum þróa áfangastaðinn í samstarfi við fólkið og fyrirtækin sem gera svæðið að því sem það er. Ímyndin sem við kynnum gestum þarf að endurspegla sérstöðu Fjallabyggðar og þau gildi sem samfélagið vill standa fyrir,“ segir Sanna Nordahl, verkefnastjóri Ferðaklasa Fjallabyggðar.

Nýi vefurinn er liður í áframhaldandi uppbyggingu klasans og mun þróast í samstarfi við félagsmenn og samfélagið.

Kynntu þér Fjallabyggð og starf Ferðaklasa Fjallabyggðar á visittrollpeninsula.com.