Hvanneyrarhyrna miðvikudaginn 4. júlí (erfiðleikastig: 3)

Gengið upp í Hvanneyrarskál og þaðan upp á brún að vestanverðu. Gengið út eggjarnar á Hvanneyrarhyrnu, niður Gróuskarð og á Gróuskarðshnjúk. Frá Gróuskarðshnjúki er gengið niður í Hvannreyrarskál. Brött og klettótt leið um lausar skriður og eftir eggjum. Ekki fyrir lofthrædda en svakalega falleg leið.

  • Verð: 500 kr. Brottför frá Ráðhústorgi á Siglufirði,klukkan 13:00. Göngutími: 3-4 klst.