Í byrjun vikunnar varð langþráður draumur unglinga í Fjallabyggð að veruleika en þá var framtíðarhúsnæði félagsmiðstöðvarinnar Neons opnað við Suðurgötu 4 á Siglufirði. Þetta húsnæði er alger bylting í aðstöðu fyrir unglingana í sveitarfélaginu.
Síðustu frágangsverk eru í vinnslu og fyrirhugað að setja lyftu í húsnæðið seinna í vetur. Húsnæðið er stórt og rúmgott og allt hið glæsilegasta. Fjölmargir unglingar mættu á fyrstu opnun og var ekki annað að sjá en að allir væru himinlifandi með nýju aðstöðuna. Það voru verktakar úr heimabyggð sem sáu um framkvæmdina og er óhætt að segja að vel hafi tekist til.
Húsnæðið skiptist í stóran rúmgóðan sal með sófum, poolborði, borðtennisborði, þythokký, píluspjöldum og fótboltaspili ásamt nýjum hljómflutningsgræjum. Þá er sérstakt spila- og fundarherbergi, leikjatölvuherbergi, sjónvarpshol og starfsmannaaðstaða og eldhúskrókur.
Starfsmenn Neons í vetur eru Karen Sif Róbertsdóttir sem er umsjónarmaður, Hörður Ingi Kristjánsson, Lísebet Hauksdóttir, Patrekur Þórarinsson og Ragna Dis Einarsdóttir.
Reglulegar opnanir verða á mánudags- og miðvikudagskvöldum kl. 20 – 22 og svo bætast við sérstakir viðburðir og ferðir yfir veturinn.
Texti og myndir: Fjallabyggð.is