Á þessari önn í Menntaskólanum á Tröllaskaga eru alls 505 nemendur við skólann, eru það heldur færri en á síðustu önn. Alls voru 572 nemendur á vorönn 2023 sem var met og 383 á vorönn árið 2019 til miðviðunar.
Flestir nemendur stunda fjarnám við skólann og eru búsettir víðsvegar um landið og nokkrir erlendis.
Kjörnámsbraut er fjölmennasta brautin, en þar velja nemendur þá sérhæfingu sem þeir vilja leggja áherslu á og skipuleggja námið í samráði við námsráðgjafa.
Næst fjölmennust er félags- og hugvísindabrautin.
Starfsfólk skólans telur tæplega 30 manns og er það sami fjöldi og síðustu ár.